Skúli
Andrésson
Hvað geri ég
Með yfir tveggja áratuga starfsreynslu, þar af rúman áratug í markaðsstarfi, vöruþróun og efnisgerð, býð ég upp á víðfeðma þekkingu og sterkt framkvæmdahandbragð. Bakgrunnur minn í kvikmyndagerð ásamt IPMA-vottun í verkefnastjórnun gerir mér kleift að brúa bilið milli skapandi sýnar og skipulagðrar framkvæmdar. Ég ólst upp á landsbyggðinni þar sem ég lærði snemma virðingu fyrir vinnunni, og sú reynsla hefur mótað þá sannfæringu að besta innsæið og dýpsti skilningurinn skapist af því að vera beint í verkinu sjálfu.
Sérstaða mín felst í því að fylgja verkefnum, vörum og vörumerkjum alla leið, frá hugmynd og handriti yfir í tökur, eftirvinnslu og lokaskil. Allt frá stórum auglýsingaherferðum, hönnun og vöruþróun yfir í vefsmíði, viðburði og samfélagsmiðla er markmiðið alltaf að skila hámarksgæðum. Ég er lausnamiðaður, drífandi og fljótur að tileinka mér nýja tækni, þar sem úthald og keppnisskap úr íþróttum tryggja að verkefni skili sér örugglega í höfn og ná tilætluðum árangri.
Markaðsstarf
& vöruþróun
Verkefnastjórn
& framkvæmd
Framleiðsla
& efnisgerð
SÝNISHORN
“bakvið tjöldin”













